Körfubolti

Hamar með yfirhöndina gegn Haukum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhanna Sveinsdóttir, leikmaður Hamars.
Jóhanna Sveinsdóttir, leikmaður Hamars. Mynd/Daníel
Hamar hafa fjórtán stiga forystu gegn Haukum í fjórða leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna.

Staðan í hálfleik er 42-28, Hamar í vil eftir öfluga frammistöðu í öðrum leikhluta. Haukar skoruðu þá aðeins sex stig gegn nítján frá heimamönnum.

LaKiste Barkus hefur skorað tólf stig fyrir Hamar og I Ásgeirsdóttir tíu.

Hjá Haukum er Kristrún Sigurjónsdóttir stigahæst með tólf stig. Slavica Dimovska skoraði ekkert stig fyrir Hauka í fyrri hálfleik.

Ef Hamar vinnur í kvöld munu liðin mætast í oddaviðureign á Ásvöllum á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×