Fótbolti

Valencia reiðubúið að selja Villa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa í leik með Valencia.
David Villa í leik með Valencia. Nordic Photos / AFP

Valencia segist vera tilbúið að hlusta á tilboð alla leikmenn en að það þurfi að vera ansi vænt ef það á að selja annað hvort David Villa eða David Silva.

Villa hefur verið orðaður við ensku úrvalsdeildina en Silva helst við Barcelona.

Fernando Gomez Colomer, varaforseti félagsins, sagði að ástæðan fyrir þessu væri sú að styrkja þyrfti fjárhagslegar stoðir félagsins. „Akkurat núna er það verkefni það mikilvægasta hjá félaginu, enn mikilvægara en árangur inn á vellinum."

Þessar fregnir munu væntanlega verða til þess að Manchester City skoði það alvarlega að gera vænlegt tilboð í Villa á næstu dögum og vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×