Enski boltinn

Kaka búinn að semja við Real Madrid?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kaka í búningi AC Milan.
Kaka í búningi AC Milan. Nordic Photos/Getty Images

Spænskir fjölmiðlar halda því fram í dag að forsetaframbjóðandinn hjá Real Madrid, Florentino Perez, sé búinn að ná samkomulagi við Brasilíumanninn Kaka um að ganga í raðir félagsins á næstu leiktíð.

Perez fékk fjölmargar stjörnur til Real í forsetatíð sinni og virðist ætla að gera slíkt hið sama nú verði hann kjörinn forseti á ný 14. júní.

Það er spænska blaðið AS sem keyrir þessa frétt sem sína aðalfrétt í dag. AS segir að faðir og umboðsmaður Kaka hafi gengið frá samningnum fyrir hans hönd.

 

Hvorki AC Milan né leikmaðurinn hafa viljað tjá sig um málið. Talið er samt að ef Milan myndi samþykkja að sleppa Kaka þá færu einhverjir leikmenn Real í hina áttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×