Sport

Vill lengja NFL-tímabilið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Big Ben Roethlisberger gæti þurft að spila fleiri leiki á næstu árum.
Big Ben Roethlisberger gæti þurft að spila fleiri leiki á næstu árum. Nordic Photos/Getty Images

Roger Goodell, forseti NFL-deildarinnar, hefur lagt það til við eigendur félaga í NFL-deildinni að leikjum deildarinnar verði fjölgað í 17 eða 18 en núna eru spilaðir 16 leikir plús úrslitakeppni.

Það er klárt mál að stuðningsmennirnir vilja fleiri leiki sem og sjónvarpsstöðvarnar.

Yfirmenn NFL-deildarinnar þurfa aftur á móti að ná samningum við eigendur sem og leikmannasamtök til að fyrirætlanir Goodell nái fram að ganga.

Hann vill að sama skapi fækka æfingaleikjum í upphafi tímabils sem vekja sífellt minni athygli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×