Fótbolti

Eiður Smári í byrjunarliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári er í byrjunarliðinu í dag en Messi ekki í hópnum.
Eiður Smári er í byrjunarliðinu í dag en Messi ekki í hópnum. Nordic Photos / AFP
Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Real Mallorca á útivelli klukkan 19.00. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti 3.

Eiður Smári er á miðjunni með þeim Yaya Toure og Xavi en í fremstu víglínu eru Thierry Henry, Samuel Eto'o og Alexander Hleb.

Seydou Keita, Bojan Krkic og Andres Iniesta eru á bekknum en Lionel Messi er ekki í hópnum þar sem hann kom heim úr jólafríi ekki fyrr en í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×