Viðskipti innlent

Gengi Bakkavarar hækkaði um rúm 25 prósent

Bakkavararbræður.
Bakkavararbræður. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Bakkavar hækkað um 25,29 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marel Food Systems, sem fór upp um 3,55 prósent og Össurar, sem hækkaði um 0,4 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa Atlantic Airways um 3,47 prósent, Century Aluminum um 3,07 prósent og Færeyjabanka um 2,02 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 0,93 prósent og endaði í 253 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×