Körfubolti

Yao Ming ekkert með næsta tímabil

Elvar Geir Magnússon skrifar
Yao Ming í baráttunni.
Yao Ming í baráttunni.

Yao Ming, leikmaður Houston Rocket, er á leið í aðgerð vegna ristarbrotsins sem hann hlaut í rimmunni gegn Los Angeles Lakers. Meðferð sem hann hefur undirgengst í sumar hefur ekki virkað.

Það er ljóst að Yao Ming missir af öllu næsta tímabili og jafnvel er talið að ferill hans sé í hættu. Hann hefur mikið verið meiddur síðustu ár en hann er hávaxnasti leikmaður NBA-deildarinnar.

Tracy McGrady verður einnig frá framan af næstu leiktíð í kjölfar aðgerðar vegna meiðsla á hné.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×