Viðskipti innlent

Hlutabréf Össurar hækka mest í byrjun dags

Gervifótur frá Össuri.
Gervifótur frá Össuri. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa Össura hefur hækkað um 1,44 prósent í Kauphöllinni í dag og bréf Marel Food Systems um 0,94 prósent. Þetta eru einu hreyfingar dagsins en viðskipti á hlutabréfamarkaði eru fjórtán talsins upp á 67,5 milljónir króna.

Gamla Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,4 prósent og stendur hún í 225 stigum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×