Fótbolti

Verður Eiður sektaður fyrir að mæta mínútu of seint á æfingu?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður Smári.
Eiður Smári. Nordic Photos/getty Images

Spænska blaðið Marca greinir frá því í dag að sex leikmenn Barcelona hafi mætt of seint á æfingu og verði hugsanlega sektaðir fyrir vikið. Þeir mættu reyndar bara einni mínútu of seint en það gæti verið nóg til að þeir fái sekt.

Þessir sex leikmenn eru Eiður Smári Guðjohnsen, Lionel Messi, Xavi, Victor Valdes, Samuel Eto´o og Yaya Toure.

Allir mættu þeir einni mínútu of seint á æfingu og þegar þeir trítluðu inn á æfingasvæðið stóð Pep Guardiola álengdar og horfði á úrið sitt.

Guardiola er umtalaður fyrir mikinn aga og ljóst að hann ætlar ekki að gefa neitt eftir í þeim efnum á lokasprettinum ef hann sektar leikmennina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×