Fótbolti

Puyol mun framlengja við Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Carles Puyol.
Carles Puyol.

Fyrirliði Barcelona, Carles Puyol, mun að öllum líkindum skrifa undir nýjan samning við Barcelona á næstu dögum.

Miðvörðurinn sterki hefur verið í viðræðum við félagið um nýjan samning upp á síðkastið og er forseti Barca, Joan Laporta, bjartur á að hægt verði að loka málinu fljótlega.

Nokkur umræða hefur verið um að Puyol hafi hug á að reyna fyrir sér annars staðar og hefur AC Milan meðal annars verið nefnt í því sambandi. Það virðist ekki ætla að verða ofan á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×