Fótbolti

Robben á leið til Bayern

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arjen Robben, leikmaður Real Madrid.
Arjen Robben, leikmaður Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Bayern München og Real Madrid hafa komist að samkomulagi um kaupverð á Hollendingnum Arjen Robben, leikmanni Real. Það er talið vera um 22 milljónir punda.

Robben mun gangast undir læknisskoðun á morgun og vona forráðamenn Bayern að hann muni geta spilað með Bayern gegn Þýskalandsmeisturum Wolfsburg á laugardaginn.

Robben hefur verið sagður á leið frá Real Madrid síðan að félagið keypti Kaka og Cristiano Ronaldo. Tottenham var sagt hafa áhuga á honum en Robben lék áður með Chelsea.

„Hann er einn besti sóknarsinnaði miðvallarleikmaður Evrópu í dag," sagði Uli Höness, framkvæmdarstjóri Bayern. „Hann var einn af þeim leikmönnum sem við höfðum áhuga á að fá. Við sjáum fyrir okkur að Robben spili á hægri kantinum og Franck Ribery á þeim vinstri," bætti Höness við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×