Fótbolti

Messi umtalaðasti leikmaður heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Nordic Photos/AFP

Nýleg könnun háskólans í Navarra hefur leitt í ljós að Lionel Messi er orðinn umtalaðasti knattspyrnumaður heims. Hann hefur tekið við þeim kyndli af Cristiano Ronaldo.

Könnunin sýnir að Messi er vinsælasti leikmaður heims sem mest er skrifað um af öllum knattspyrnumönnum. Markið sem hann skoraði í úrslitum Meistaradeildarinnar kom honum fram úr Ronaldo.

Í könnuninni var einnig leitast við að finna út raunverulegt verðmæti leikmanna og þar var Ronaldo á toppnum. Hann var verðlagður á 82 milljónir evra sem er 12 milljónum minna en Real ætlar sér að greiða fyrir hann. United er samkvæmt því að fá meira en toppverð fyrir leikmanninn.

Messi er í öðru sæti verðlagður á 80 milljónir evra og Fernando Torres kemur svo í þriðja sæti en hann var verðlagður á 67 milljónir evra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×