Fótbolti

Lilleström enn án sigurs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Örn Sigurðsson í leik með Brann.
Kristján Örn Sigurðsson í leik með Brann. Nordic Photos / Getty Images

Brann vann Lilleström, 3-1, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en síðarnefnda liðið er enn án sigurs eftir fyrstu sjö leiki sína í deildinni.

Birkir Már Sævarsson, Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason léku allir í varnarlínu Brann í kvöld og Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður á 53. mínútu. Ármann Smári Björnsson var á varamannabekk Brann.

Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í leikmannahópi Lilleström sem er í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig.

Brann er í sjöunda sæti deildarinnar með níu stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×