Enski boltinn

Pellegrini: Ekkert leyndarmál að við viljum fá Alonso

Ómar Þorgeirsson skrifar
Xabi Alonso.
Xabi Alonso. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn Manuel Pellegrini hjá Real Madrid bindur enn vonir við að félagið nái að krækja í spænska landsliðsmanninn Xabi Alonso hjá Liverpool en knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool hefur ítrekað að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

„Það er ekkert leyndarmál að við viljum fá Alonso. Við vitum að það verður ekki auðvelt en við skulum sjá til hvað gerist í þessum málum. Við erum samt líka að skoða aðra kosti ef ekkert gengur með Alonso," er haft eftir Pellegrini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×