Atli: Þekkti varla leikmennina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júlí 2009 21:45 Atli Eðvaldsson á hliðarlínunni í kvöld. Mynd/Arnþór
Atli Eðvaldsson viðurkennir að það hafi verið erfitt að koma inn í leik Vals og KA í kvöld eftir að hafa náð aðeins einni æfingu með Val fyrir leikinn. Atli tók við þjálfun liðsins af Willum Þór Þórssyni sem hætti í síðustu viku. Atli er búsettur í Þýskalandi og kom til landsins í gær. Hann hefur lítið getað fylgst með íslenska boltanum vegna þessa. „Ég þekkti varla strákana þegar ég var að reyna að stilla þeim upp á æfingu í gær. En ég reyndi nú að muna eftir nöfnunum þeirra og þá fékk ég tilfiningu fyrir þeim. En ég held að það hafi bara gengið þokkalega vel í kvöld. Við gerðum margt ágætt og náðum af og til að loka inn á svæði sem þeir voru að reyna að nýta sér," sagði Atli. „Vandamálið virðist vera að leikmenn eru ef til vill svolítið stressaðir á boltanum. Það er eitthvað sem við þurfum að laga og þegar við þorum að halda boltanum og spila honum þá verður þetta betra." Valur mætir næst KR í deildinni um helgina og Atli ætlar að nýta tímann vel fram að því. „Ég held að skipulagið á liðinu verði orðið betra og ég sé mikla möguleika í þessu liði. Valur á að geta unnið öll liðin í deildinni." Atli lék á sínum tíma með bæði Val og KR auk þess sem hann þjálfaði einnig síðarnefnda liðið. Hann segir það skondna tilviljun að hans fyrsti deildarleikur nú, sem þjálfari Vals, sé gegn KR. „Minn fyrsti deildarleikur með KR, bæði sem leikmaður og þjálfari, var gegn Val. Minn fyrsti leikur sem leikmaður með Val var gegn KR en þá kom ég inn á sem varamaður og skoraði. Þetta er skrýtið. En alveg örugglega góðs viti."
Íslenski boltinn Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti „Brjálæðisleg orka“ Hákonar og einstakt samband við David Fótbolti Breyttist í Messi þegar það vantaði Messi Fótbolti Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira