Fótbolti

Brann vann Molde

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Örn Bjarnson í leik með Brann.
Ólafur Örn Bjarnson í leik með Brann. Nordic Photos / AFP
Brann vann í gær 2-0 sigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason og Birkir Már Sævarsson voru sem fyrr allir í byrjunarliði Brann og allir í öftustu varnarlínu.

Þeir Gylfi Einarsson og Ármann smári Björnsson komu báðir inn á sem varamenn í leiknum.

Þetta var lokaleikur 11. umferðar deildarinnar en Brann færðist upp í fimmta sæti deildarinnar með sigrinum. Liðið er með sextán stig, sjö stigum á eftir toppliði Rosenborg. Molde er í fjórða sæti með átján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×