Sport

Keppnisbanni Phelps lauk í gær

Nordic Photos/Getty Images

Bandaríski sundkappinn Michael Phelps er nú að undirbúa sig undir fyrsta mótið sitt eftir að hafa setið af sér þriggja mánaða keppnisbann.

Hinn 23 ára gamli Phelps setti met þegar hann vann sín 14. gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking í fyrra en var dæmdur í keppnisbann eftir að myndir láku í fjölmiðla af honum reykjandi kannabis.

Phelps íhugaði að hætta eftir hneykslismálið en ákvað að keppa í minnst fjögur ár í viðbót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×