Innlent

Víkingasveit yfirbugaði Barðastrandarbyssumann 2002

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Sérsveit lögreglu var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Barðaströnd.
Sérsveit lögreglu var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Barðaströnd.

Maðurinn sem sérsveit lögreglu yfirbugaði á Barðaströnd í morgun hefur áður komið við sögu lögreglu vegna svipaðra mála. Hann var yfirbugaður af Víkingasveit lögreglunnar í ágúst 2002 eftir þriggja klukkustunda umsátur fyrir utan heimili mannsins á Álftanesi.

Lögreglu barst tilkynning um klukkan átta að morgni mánudagsins 5. ágúst 2002 um að dauðadrukkinn maður hefði hleypt af tveimur skotum í íbúðarhúsi á Álftanesi og ógnað fólki í húsinu. Fólkið var þó farið úr húsinu þegar sérsveitarmenn komu á vettvang. Áður hafði þrennt verið í húsinu utan byssumannsins, þar af tveir gestir. Í fyrstu var lokað fyrir alla umferð út á Álftanes en eftir að bættist í lið lögreglunnar var lokunin bundin við götur sem lágu að heimili mannsins.

Maðurinn bjó um sig í húsinu og neitaði að gefa sig fram. Í fyrstu var talið að gestirnir tveir væru enn í húsinu hjá manninum. Lögregla hafði því allan varanná. Fljótlega var þó hægt að staðfesta að gestirnir væru farnir.

Eftir að hafa verið í stöðugu símasambandi við byssumanninn í um þrjá klukkutíma án þess að hann gæfi sig fram lét víkingasveitin til skarar skríða. Meðlimir hennar fóru bakdyramegin inn í húsið og tóku manninn höndum.

Hann var ekki með skotvopn í höndum og veitti enga mótspyrnu. Auk haglabyssunnar sem maðurinn handlék voru þrjú önnur skotvopn í húsinu en hann hafði leyfi fyrir öllum vopnunum.

Samkvæmt heimildum Vísis var maðurinn aldrei ákærður fyrir atvikið árið 2002 og fékk að halda byssuleyfinu þar sem síðar kom í ljós að engum skotum hafði verið hleypt af.

Maðurinn lét svo aftur til skarar skríða í nótt en laust fyrir miðnætti barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning um mann sem gekk berserksgang í sumarbústaðalandi á Barðaströnd. Kalla þurfti til sérsveit lögreglu en flogið var með hana vestur í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Lögreglumenn frá Ísafirði og Patreksfirðu fóru einnig á staðinn.

Vel gekk að tryggja ástand á vettvangi að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum og undir morgun tókst að yfirbuga manninn. Maðurinn, sem var ölvaður, er enn í haldi lögreglunnar á Patreksfirði en í dag fór rannsóknarlögreglumaður frá Ísafirði til Patreksfjarðar til að yfirheyra manninn. Lögreglan á Ísafirði gat ekki staðfest að maðurinn hefði skotið úr byssunni í nótt.








Tengdar fréttir

Byssumaður gekk berserksgang á Barðaströnd

Lögreglunni á vestfjörðum barst tilkynning um miðnætti að maður gengi berserksgang á Barðaströnd, vopnaður skotvopni. Lögreglan á Ísafirði og Patreksfirði fór á staðinn en einnig var óskað aðstoðar sérsveitar lögreglu sem flutt var vestur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×