Fótbolti

Enn saxar Real á forskot Barca

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guti skoraði glæsilegt mark í kvöld.
Guti skoraði glæsilegt mark í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Forysta Barcelona á toppi spænsku deildarinnar er aðeins fjögur stig eftir 2-0 sigur Real Madrid á Espanyol í kvöld.

Barcelona á samt einn leik inni á Real.

Guti kom Real yfir með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu í síðari hálfleik. Hann var þá tiltölulega nýkominn af bekknum.

Markið virkaði sem vítamínsprauta á lið Real og Raul bætti öðru marki við skömmu síðar.

Fékk boltann fyrir utan teig og afgreiddi hann glæsilega í hornið niðri.

Mikil sigling á Real í spænsku deildinni og þeir létu tapið gegn Liverpool í vikunni ekki trufla sig þegar þeir sóttu Espanyol heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×