Fótbolti

Ronaldo ætlar að verða besti knattspyrnumaður sögunnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cristiano Ronaldo er metnaðarfullur knattspyrnumaður. Hann hefur nú stefnt að því að verða aftur valinn besti knattspyrnumaður heims og það sem meira er þá vill hann að sín verði minnst sem besta knattspyrnumanns allra tíma.

„Ég verð valinn besti knattspyrnumaður heims á næsta ári eða þarnæsta. Ég hef metnað til þess að verða besti knattspyrnumaður sögunnar," sagði Ronaldo sem hefur verið mikið meiddur á ökkla í vetur.

„Ökklinn er fínn og ef hann verður aftur slæmur þá laga læknarnir hjá Real Madrid meinið. Ég er viss um að ég mun ekki þurfa að fara í aðgerð."



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×