Fótbolti

Barcelona missteig sig gegn Bilbao

Ómar Þorgeirsson skrifar
Dani Alves.
Dani Alves. Nordic photos/AFP

Barcelona tapaði stigum í toppbaráttunni á Spáni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Athletic Bilbao.

Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik á San Mames-leikvanginum í Bilbao en Dani Alves opnaði markareikninginn fyrir gestina snemma í síðari hálfleik.

Leikmenn Barcelona voru þó ekki lengi í paradís því varamaðurinn Gaizka Toquero Pinedo jafnaði leikinn skömmu síðar.

Leikmenn Barcelona reyndu hvað þeir gátu að bæta við marki það sem eftir lifði leiks en þetta var ekki þeirra kvöld og niðurstaðan var sem segir 1-1 jafntefli.

Real Madrid heldur því toppsæti deildarinnar en Barcelona er einu stigi á eftir erkifjendum sínum í öðru sætinu.

Í næstu umferð í deildinni mætast svo einmitt Barcelona og Real Madrid á Nývangi í hinum svonefnda El Clásico-leik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×