Skoðun

Icesave-spuni aðstoðarritstjóra

Einar K. Guðfinnsson skrifar
Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, skrifar leiðara síðastliðinn laugardag sem er af sama toga spunninn og málflutningur fjármálaráðherrans Steingríms J. Sigfússonar. Spuninn er sá að samþykkja beri Icesave-samkomulagið, ella höfum við verra af. Og svo er bætt um betur í leiðaranum og reynt að færa fyrir því rök að þau ósköp sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í formi Icesave-samningsins séu afsprengi síðustu ríkisstjórnar!

Þetta er útúrsnúningur, til þess fallinn að afvegaleiða og því ekki hægt að láta ómótmælt.

Sá samningur sem nú liggur fyrir Alþingi er á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Hann er gerður undir forræði ríkisstjórnarinnar, unninn af samninganefnd sem stjórnin skipaði og fjármálaráðherrann hefur staðfest afstöðu sína til hans með því að nota hvert tækifæri til að bera blak af niðurstöðunni. Þar ferst honum öðruvísi en forsætisráðherranum, sem reynir að þvo hendur sínar af samningnum með því að lyfta tæplega litla fingri til þess að verja þessa gjörð.

Ástæða þess að þingið fjallar svo ákaft um þennan samning er einföld. Það fyrirfinnst varla nokkur þingmaður utan Steingríms J. Sigfússonar sem treystir sér til að samþykkja hann. Þess vegna leita menn allra mögulegra leiða til að gera á honum þær breytingar sem hægt er. Með því er vitaskuld verið að segja að þessi afurð ríkisstjórnarinnar sé ómöguleg og þingið vilji ekki axla ábyrgð á henni.

Það er mikill misskilningur hjá aðstoðarritstjóranum að íslenska þjóðin eigi bara tvo kosti; þennan ólukkans samning ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, eða ekkert. Samningurinn er algjörlega í blóra við þau samningsmarkmið sem Alþingi samþykkti í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hann er ofurhlaðinn alls konar göllum og hreinum og klárum mistökum. Þar má nefna meðal annars ábendingar lögmannanna Ragnars H. Hall og Harðar Felix Harðarsonar auk Eiríkis Tómassonar prófessors, sem sýnt hafa fram á að vegna samningsafglapa séum við að taka á okkur hundruð milljarða að þarflausu.

Þetta lætur aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins sér í léttu rúmi liggja, svo ótrúlegt sem það er. Og bítur svo höfuðið af skömminni með því að bera í bætifláka fyrir þær þjóðir sem eru að nota ofurefli sitt til þess að þvinga okkur til nauðungarsamninga á borð við Icesave-afstyrmið. Það er varla hægt að lúta lægra í minnimáttar­kennd og þarflausri pólitískri nauðhyggju.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×