Körfubolti

Vill bara tala við Shaq á Twitter

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Mynd/Getty Images
Shaquille O´Neal og Mark Cuban, eigandi Dallas, hafa skipst á skoðunum í fjölmiðlum í Bandaríkjunum undanfarið. O´Neal, sem nú leikur með Phoenix Suns, gaf í skyn að hann myndi ganga í raðir Dallas í sumar.

O´Neal hefur lítið viljað ræða sumarið en hann sagði við ESPN: „Þú veist hver þarf á mér að halda, er það ekki?" Aðspurður hvort um væri að ræða Dallas sagði hann: „Skrifaðu það."

Cuban og O´Neal eru góðir vinir en þegar þessi orð voru borin undir Cuban sagðist hann vilja halda samskiptunum við O´Neal í gegnum Twiter, samskiptavefinn vinsæla.

Cuban vildi þó ekki útiloka samning við O´Neal í sumar en leikmaðurinn hefur lengi vel ýjað að því að hann vilji spila fyrir Dallas, þar sem hann á íbúð.

O´Neal hefur skorað 17.8 stig í leik að meðaltali fyrir Phoenix og tekið 8,5 fráköst í leik.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×