Körfubolti

Skápur Jordan fór á þrjár milljónir

Michael Jordan er hér ásamt Scottie Pippen og Dennis Rodman í leik um miðjan tíunda áratuginn
Michael Jordan er hér ásamt Scottie Pippen og Dennis Rodman í leik um miðjan tíunda áratuginn Nordic Photos/Getty Images

Skápurinn sem Michael Jordan notaði þegar hann lék með Chicago Bulls á sínum tíma seldist í gær á þrjár milljónir króna á góðgerðauppboði sem félagið stóð fyrir.

Þessi forláta viðarskápur úr búningsklefa Bulls var einn af þrettán munum tengdum Jordan sem seldust á uppboðinu. Jordan, sem almennt er álitinn besti körfuboltamaður allra tíma, var innvígður í heiðurshöll körfuboltans á dögunum.

Alls fengust nær 15 milljónir króna fyrir hlutina á uppboðinu en þar voru m.a. áritaðar treyjur sem Jordan spilaði í þegar liðið varð meistari á árunum 1996-98.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×