Ronaldo ákvað að fara í fyrra Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. júní 2009 08:00 Cristiano Ronaldo í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Cristiano Ronaldo segir í viðtali við News of the World í dag að hann hafi ákveðið sig síðasta sumar að fara frá Manchester United. Ronaldo og hans fulltrúar eru að ganga frá samningum við Real Madrid en United hefur samþykkt kauptilboð upp á 80 milljónir punda í kappann. Hann var sterklega orðaður við Real Madrid í fyrra en ekkert varð úr því að hann færi þá. Ronaldo átti frábæru gengi að fagna með United á þarsíðasta tímabili er liðið varð bæði Englands- og Evrópumeistari auk þess sem að Ronaldo hirti flest þau einstaklingsverðlaun sem hann gat fengið það tímabilið. „Eftir að við urðum Evrópumeistarar fannst mér að ég gæti ekkert meira afrekað hér," er haft eftir Ronaldo. „Og þá veit maður að það er kominn tími á nýja áskorun." „Ég varð áfram í eitt tímabil til viðbótar og það var ánægjulegt að vinna þriðja meistaratitilinn í röð. En draumur minn var að spila með Madrid." Hann sagðist einnig ekki hafa farið til Real vegna peninganna. „Ég vil verða sá allra besti. Það mun kosta mikla vinnu en það er markmiðið mitt. Ef maður verður einn sá besti hjá Real þýðir það að maður verður einn sá besti í sögunni."
Spænski boltinn Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Fleiri fréttir Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Slæmt gengi gestanna heldur áfram Sjá meira