Fótbolti

Franska liðið Lyon hefur mikinn áhuga á Eiði Smára

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar sigri í Meistaradeildinni.
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar sigri í Meistaradeildinni. Mynd/AFP

Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið á leiðinni til franska liðsins Lyon í sumar en spænska Sport-blaðið segir í dag að Lyon sé í viðræðum við Eið og Barcelona um að kaupa hann. Lyon missti af franska meistaratitlinum í vetur eftir að hafa unnið hann sjö ár í röð.

Barcelona og Lyon eru langt komin með að ákveða kaupverðið á íslenska landsliðsmanninum en Eiður Smári á sjálfur eftir að ákveða hvort hann vilji fari til Lyon.

Samkvæmt heimildum spænska blaðsins ræður Eiður Smári því sjálfur hvar hann spilar næsta tímabil og hann getur alveg klárað samning sinn við spænsku meistarana óski hann þess.

Eiður Smári á eitt ár eftir af samningu sínum við Barcelona en hefur gefið það í skyn að hann vilji reyna fyrri sér á öðrum vígstöðum á næsta tímabili.

Eiður Smári varð á þessu tímabili fyrsti íslendingurinn til þess að vinna Meistaradeildina og einnig sá fyrsti sem vinnur þrefalt á einu tímabili.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×