Fótbolti

Perez vill létta á launakostnaði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Florentino Perez.
Florentino Perez.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur skipað yfirmönnum félagsins að finna kaupendur að minnsta kosti sex leikmönnum félagsins.

Færri fóru frá félaginu en búist var við í sumar og Perez vill losna við þessa leikmenn strax í janúar.

Þeir sem eru taldir vera á sölulista félagsins eru Guti, Mahamadou Diarra, Fernando Gago, Ruud Van Nistelrooy, Jerzy Dudek, Royston Drenthe og Christoph Metzelder.

Ekki er talið að mikið sé að marka þær fréttir að félagið muni reyna að fá pening fyrir Raul.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×