Tónlist

Plata með Timbaland

Timbaland var upptökstjóri á nýjustu plötu söngvarans.
Timbaland var upptökstjóri á nýjustu plötu söngvarans.

Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timba­land. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars. Lögin á henni tengjast öll innbyrðis á þann hátt að hvert lag flæðir inn í hitt. Sagt er að Cornell og Timbaland hafi haft meistaraverk Pink Floyd, The Wall, til hliðsjónar við gerð plötunnar.

Cornell, sem spilaði í Laugardalshöll árið 2007, hefur látið hafa eftir sér að platan sé sú besta sem hann hafi komið nálægt á ferlinum. Hann ætlar að fylgja henni eftir með tónleikaferð um Evrópu sem hefst í febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.