Körfubolti

IE-deild kvenna: KR enn með fullt hús stiga

Ómar Þorgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm

Bikarmeistarar KR héldu áfram á sigurbraut í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta í dag þegar liðið vann sannfærandi 69-37 sigur gegn Snæfelli í DHL-höllinni.

Yfirburðir KR voru miklir í leiknum en staðan var 37-14 í hálfleik. Signý Hermannsdóttir var atkvæðamest hjá KR með 16 stig og 6 fráköst en Unnur Tara Jónsdóttir kom næst með 11 stig og 9 fráköst.

Hjá Snæfelli var Berglind Gunnarsdóttir stigahæst með 11 stig en Kristen Green kom næst með 10 stig og 11 fráköst. KR hefur unnið alla fimm leiki sína í deildinni til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×