Viðskipti innlent

Össur og Marel ein á hreyfingu í Kauphöllinni

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar.

Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hefur hækkað um 1,58 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa Marel Food Systems hefur hækkað um 1,38 prósent á sama tíma.

Aðrar hreyfingar eru ekki á hlutabréfamarkaði.

Einungis sex viðskipti upp á 15,5 milljónir króna standa á bak við hækkun hlutabréfa í Össuri og Marel.

Gamla Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,66 prósent og stendur hún í 216 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×