Fótbolti

Henry mögulega aftur í byrjunarlið Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thierry Henry í leik með Barcelona.
Thierry Henry í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP
Spænskir fjölmiðlar telja líklegt að Thierry Henry verði í byrjunarliði Barcelona sem mætir Real Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Henry meiddist í september síðastliðnum og hefur síðan þá ekkert spilað með Barcelona ef frá er talin stutt innkoma gegn Rubin Kazan í Meistaradeildinni í vikunni.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að honum hafi sinnast við Pep Guardiola, stjóra Barcelona, en hvorugur hefur tjáð sig nokkuð um það.

Henry verður sennilega í fremstu víglínu í kvöld ásamt Zlatan Ibrahimovic. Með sigri nær Barcelona fjögurra stiga forystu í deildinni en fljótlega eftir leiknum lýkur hefst Madrídarslagur Real og Atletico. Real er sem stendur einu stigi á eftir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×