Körfubolti

LeBron James sá um Boston

LeBron James var óstöðvandi í nótt
LeBron James var óstöðvandi í nótt AP

LeBron James fór á kostum í nótt þegar lið hans Cleveland festi sig í sessi sem topplið Austurdeildarinnar með því að leggja Boston á sannfærandi hátt 98-83 á heimavelli.

James skoraði 38 stig fyrir Cleveland sem hefur unnið alla 19 heimaleiki sína til þessa á leiktíðinni og raunar sjö sigra í röð á Boston á heimavelli sínum. Boston hefur ekki lagt Cleveland á útivelli síðan árið 2004.

LeBron James hefur skorað 30,3 stig að meðaltali í leik gegn Boston á ferlinum og er það hæsta meðaltal leikmanns gegn þessu fornfræga liði á eftir Michael Jordan (30,7).

Kevin Garnett var atkvæðamestur hjá Boston með 18 stig og 15 fráköst, en ljóst er að meistararnir eru í miklu óstuði þessa dagana og hafa tapað sjö af síðustu níu leikjum sínum.

Bryant skoraði sigurkörfu Lakers

LA Lakers hefur besta árangur allra liða í deildinni ásamt Cleveland og í nótt vann liðið nauman sigur á Indiana á heimavelli 121-119.

Kobe Bryant átti stórkostlegan leik fyrir Lakers. Skoraði 36 stig, gaf 13 stoðsendingar og hirti 7 fráköst - og skoraði sigurkörfu Lakers þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Danny Granger skoraði 28 stig fyrir Indiana.

Denver tók á móti Detroit þar sem þeir Chauncey Billups og Allen Iverson mættu sínum gömlu félögum. Billups skoraði 30 stig fyrir Denver sem var yfir nær allan leikinn, en Detroit stal sigrinum 93-90.

Iverson skoraði megnið af 23 stigum sínum í lokaleikhlutanum, en Detroit var án Rasheed Wallace í leiknum og Denver án Carmelo Anthony.

Þá vann Phoenix góðan sigur á Dallas 128-100 á heimavelli sínum. Shaquille O´Neal skoraði 25 stig og hirti 10 fráköst fyrir Phoenix, Jason Richardson var með 21 stig og Leandro Barbosa 20. Dirk Nowitzki skoraði 19 stig fyrir Dallas. 

Úrslitin í nótt:

Philadelphia      93-87     Charlotte Bobcats

Sacramento      115-119    Miami Heat

New Orleans      107-80     LA Clippers

Milwaukee      104-102    New Jersey Nets

Cleveland Cavs     98-83     Boston Celtics

Toronto      103-82     Memphis Grizzlies

LA Lakers     121-119 Indiana Pacers

Chicago Bulls     98-86     Washington Wizards

Phoenix Suns     128-100    Dallas Mavericks

Denver Nuggets     90-93    Detroit Pistons

Oklahoma City     96-98     Houston Rockets

Orlando Magic     121-87     Atlanta Hawks

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×