Fótbolti

Alves úr leik hjá Barcelona

AFP

Brasilíski bakvörðurinn Daniel Alves hjá Barcelona getur ekki leikið meira með liði sínu á leiktíðinni. Alves meiddist á fæti á æfingu og missir af tveimur síðustu deildarleikjum liðsins.

Sem betur fer fyrir Barcelona og Alves sjálfan, eru þessir leikir ekki mjög þýðingarmiklir þar sem Barcelona hefur þegar tryggt sér spænska meistaratitilinn.

Liðið leikur til úrslita í meistaradeildinni í næstu viku, en þar var Alves í banni og hefði því ekki mátt spila hvort sem var.

Alves er á sínu fyrsta ári með Barcelona og uppskeran er fín - deildarmeistaratitill, konungsbikar og svo hugsanlega Evrópubikar í bónus.

Alves spilaði 52 leiki fyrir Barca í vetur og skoraði í þeim fimm mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×