Enski boltinn

Ballack: Helmingslíkur gegn Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Michael Ballack í leiknum í gær.
Michael Ballack í leiknum í gær. Nordic Photos / Getty Images
Michael Ballack telur að sínir menn í Chelsea eigi helmingslíkur á að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir að ljóst varð að liðið mætir Barcelona í undanúrslitum.

Chelsea komst í úrslitin eftir 7-5 samanlagðan sigur á Liverpool en liðin skildu jöfn í gærkvöldi, 4-4.

Barcelona átti hins vegar í litlum vandræðum með Bayern München eftir 4-0 sigur liðsins í fyrri leik liðanna.

„Allir vita vel hversu sterkt lið Barcelona er með. Það fengu allir að sjá í leikjunum gegn Bayern München, sérstaklega í þeim fyrri."

„Við vitum því við hverju við megum búast. Við unnum Liverpool og það hefur aukið sjálfstraust okkar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×