Sport

Serena í undanúrslitin ásamt þremur Rússum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Serena fagnar sigrinum í nótt.
Serena fagnar sigrinum í nótt. Nordic Photos / AFP
Serena Williams tryggði sér í nótt sæti í undanúrslitum einliðaleiks kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Hún er þar með eini keppandinn í undanúrslitunum sem er ekki frá Rússlandi en hún vann einmitt hina rússnesku Svetlönu Kuznetsovu í fjórðungúrslitunum í nótt, 5-7, 7-5 og 6-1.

Serena mætir Elenu Dementievu í undanúrslitunum en sú síðarnefnda vann í nótt sigur á Carla Suarez Navarro í tveimur settum, 6-2 og 6-2.

Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Vera Zvonareva og Dinara Safina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×