Fótbolti

Nakamura til Espanyol

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nakamura er farinn frá Celtic.
Nakamura er farinn frá Celtic. Nordic Photos/AFP

Japaninn skemmtilegi, Shunsuke Nakamura, hefur ákveðið að ganga í raðir spænska liðsins Espanyol frá skoska liðinu Celtic.

Nakamura var án samnings og kemur til spænska liðsins án greiðslu. Hann flýgur til Barcelona í júlí þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samninginn.

Japaninn er annar leikmaðurinn sem Espanyol nær sér í síðustu tvo daga. Í gær nældi félagið nefnilega í framherjann Ben Sahar frá Chelsea en það vissu kannski ekkert rosalega margir af því að hann væri í herbúðum Lundúnafélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×