Fótbolti

Villa búinn að ákveða sig

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
David Villa í leik með spænska landsliðinu.
David Villa í leik með spænska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

David Villa segist þegar búinn að ákveða sig hvert hann vilji fara nú í sumar en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið að undanförnu.

Villa hefur aðallega verið orðaður við Barcelona og Real Madrid en ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United, Chelsea og Liverpool eru einnig sögð áhugasöm um að fá hann í sínar raðir.

Hann er á mála hjá Valencia sem á í miklum fjárhagslegum vandræðum og þarf því að selja marga af sínum bestu leikmönnum.

„Ég hef tekið mína ákvörðun," sagði hann á blaðamannafundi eftir 1-0 sigur Spánverja á Írak í Álfukeppninni í gær. Hann skoraði eina mark leiksins.

„Umboðsmaðurinn minn veit hverjar mínar óskir eru og hann er að vinna í þessum málum. Ég hef því engar áhyggjur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×