Fótbolti

Meiðslaáhyggjur af Ronaldo

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo fær aðhlynningu á Ólympíuleikvanginum í Róm í morgun.
Ronaldo fær aðhlynningu á Ólympíuleikvanginum í Róm í morgun. Nordic Photos / Getty Images

Enskir fjölmiðlar velta nú fyrir sér hvort Cristiano Ronaldo sé tæpur fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu sem fer fram í Rómarborg í kvöld.

Gera þurfti að ökkla Ronaldo á æfingu United á Ólympíuleikvanginum í Róm í morgun en hann missti af upphafi tímabilsins eftir að hafa gengist undir aðgerð á ökklanum.

Þó þykir afar líklegt að Ronaldo verði í byrjunarliði United í kvöld. Að hann verði í sókninni með þeim Wayne Rooney og Ji-sung Park.

Búist er við því að þeir Nemanja Vidic og Rio Ferdinand verði í vörn United í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×