Körfubolti

NBA: Góður sigur hjá Lakers

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

New Orleans Hornets tapaði sínum fimmta leik í röð er liðið sótti meistara LA Lakers heim í Staples Center í gær.

Hornets átti ekkert í Lakers þó svo Pau Gasol og Andrew Bynum séu frá vegna meiðsla og Kobe Bryant var tiltölulega rólegur.

Hann skoraði 28 stig og þar af 26 í fyrri hálfleik. Bekkurinn hjá Lakers var gríðarsterkur en 46 stig komu frá bekknum. Shannon Brown kom sérstaklega sterkur inn með þrjár þriggja stiga körfur í þriðja leikhluta.

„Þetta var aðeins auðveldara en ég bjóst við," sagði Phil Jackson, þjálfari Lakers.

„Ég var sérstaklega stoltur af Shannon sem leysti Derek Fisher frábærlega af hólmi. Við vissum vel að hann gæti þetta."

Úrslit næturinnar:

Washington-Phoenix 90-102

Detroit-Philadelphia 88-81

Oklahoma-Orlando 102-74

Portland-Minnesota 116-93

Sacramento-Golden State 120-107

LA Lakers-New Orleans 104-88

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×