Fótbolti

Betis rekur þjálfarann

Spænska knattspyrnufélagið Real Betis hefur rekið þjálfarann Paco Chaparro úr starfi vegna lélegs gengis og fengið aðstoðarmanni hans Jose Maria Nogues starf hans til loka leiktíðar.

Ákvörðunin var tekin eftir að Betis gerði 3-3 jafntefli í fallslag á heimavelli gegn Numancia á laugardaginn, en í kjölfarið er Betis aðeins stigi frá fallsæti þegar níu umferðir eru eftir.

Chaparro hafði verið við stjórnvölinn hjá Betis síðan í desember 2007 þegar hann tók við af Hector Cuper, en jafntefli liðsins um helgina þýddi að það hefur ekki unnið sigur í síðustu sjö leikjum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×