Fótbolti

United hafði heppnina með sér

NordicPhotos/GettyImages

Jose Gomes, aðstoðarþjálfari Porto, segir að Manchester United hafi einfaldlega haft heppnina með sér í einvígi liðanna í Meistaradeildinni og þess vegna sé liðið komið áfram í undanúrslitin.

Gomes stýrði liði Porto í fjarveru Jesualdo Ferreira í síðari leik liðanna í gær þar sem aðalþjálfarinn tók út leikbann. Hann var skiljanlega ósáttur við niðurstöðuna þar sem Porto var í mjög góðri stöðu fyrir síðari leikinn á heimavelli. Stórkostlegt mark frá Cristiano Ronaldo í byrjun leiks gerði hinsvegar út um vonir portúgalska liðsins.

"Úrslitin voru ekki sanngjörn, en Manchester United hafði heppnina með sér. Svona er fótboltinn. Við hefðum átt að komast í næstu umferð og erum með óbragð í munninum," sagði Gomes. "Við erum stoltir af leikmönnum okkar. Þeir léku mjög vel á móti frábæru liði sem er með besta leikmann heims í sínum röðum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×