Fótbolti

Negredo sagður á leið til Sevilla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Negredo, lengst til vinstri, fagnar marki í leik með Almeria.
Negredo, lengst til vinstri, fagnar marki í leik með Almeria. Nordic Photos / AFP

Alvaro Negredo er nú sagður á leiðinni til Sevilla á Spáni en hann hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Hull í ensku úrvalsdeildinni.

Phil Brown, stjóri Hull, staðfesti í samtali við fjölmiðla í gærkvöldi að Negredo kæmi ekki til félagsins. Hann vildi ekki fara frá Spáni en hann er nú á mála hjá Real Madrid.

Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að Sevilla sé reiðubúið að borga fimmtán milljónir evra fyrir Negredo sem skoraði nítján mörk á síðasta tímabili fyrir Almeria.

„Þetta lítur vel út en það er ekkert staðfest enn," sagði Manolo Jimenez, stjóri Sevilla, í samtali við spænska fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×