Körfubolti

Ginobili úr leik hjá San Antonio

Ginobili leikur ekki meira með San Antonio á þessu tímabili
Ginobili leikur ekki meira með San Antonio á þessu tímabili Nordic Photos/Getty Images

NBA-lið San Antonio Spurs hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli nú rétt fyrir úrslitakeppni. Ökklameiðsli Argentínumannsins Manu Ginobili hafa tekið sig upp að nýju og hefur þegar verið úrskurðaður úr leik í deild og úrslitakeppni.

Þessi sömu ökklameiðsli háðu Ginobili einmitt mikið í úrslitakeppninni fyrir ári, en þvert á óskir forráðamanna San Antonio fór þessi öflugi leikmaður með Argentínu á Ólympíuleikana. Þar tóku meiðslin sig upp að nýju og hafa háð honum í allan vetur þó hann hafi farið í uppskurð.

Þetta er mikið reiðarslag fyrir San Antonio, en Ginobili hefur verið algjör lykilmaður í þremur meistaraliðum Spurs árin 2003, 2005 og 2007.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×