Fótbolti

Huntelaar búinn að semja við Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar
Huntelaar í landsleik gegn Íslandi.
Huntelaar í landsleik gegn Íslandi.

Real Madrid hefur náð samkomulagi um kaup á hollenska sóknarmanninum Klaas Jan Huntelaar frá Ajax. Real tilkynnir þetta á opinberri heimasíðu sinni.

Huntelaar verður orðinn leikmaður Real Madrid í janúar en hann hefur náð samkomulagi um samning til ársins 2013. Hann mun fylla skarð Ruud van Nistelrooy sem leikur ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla.

Huntelaar hefur lengi verið eftirsóttur af stórliðum Evrópu enda hefur hann raðað inn mörkum í hollensku deildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×