Fótbolti

Eiður Smári bað um skiptingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Barcelona á tímabilinu.
Eiður Smári í leik með Barcelona á tímabilinu. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen bað um skiptingu snemma í leik Real Madrid og Barcelona í kvöld vegna meiðsla.

Eggert Skúlason, fjölmiðlafulltrúi Eiðs Smára, staðfesti þetta í samtali við Vísi í kvöld. Eiður hefur átt við meiðsli í fæti að stríða og fékk sprautu vegna þeirra í gær.

Fljótlega í kvöld gerði hann sér hins vegar grein fyrir því að hann gæti ekki haldið áfram.

Real Madrid vann leikinn í kvöld, 4-1, en staðan var 2-0 þegar Eiði Smára var skipt út af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×