Fótbolti

Reyes lánaður til Benfica

Elvar Geir Magnússon skrifar
Reyes hefur ekki náð þeim hæðum sem búist var við.
Reyes hefur ekki náð þeim hæðum sem búist var við.

Benfica hefur fengið sóknarmanninn Jose Antonio Reyes lánaðan frá Atletico Madrid út leiktíðina. Þessi 24 ára leikmaður hefur ekki náð að finna sig hjá spænska liðinu.

Hann gekk til liðs við Atletico frá Arsenal í fyrrasumar en náði ekki að skora í 26 leikjum fyrir félagið. Hann var ekki í áætlunum Javier Aguirre sem ákvað því að lána hann.

Benfica mun einnig hafa forkaupsrétt á Reyes eftir að lánssamningi hans lýkur. Reyes hóf ferilinn hjá Sevilla en fór til Arsenal 2004. Hann var tvö ár hjá félaginu og var síðan lánaður til Real Madrid tímabilið 2006/07.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×