Íslenski boltinn

Kvennalið Vals fær færeyska landsliðsmarkvörðinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Randi er hér að fara að heilsa upp á verðandi samherja sína. Mynd af heimasíðu KÍ.
Randi er hér að fara að heilsa upp á verðandi samherja sína. Mynd af heimasíðu KÍ.

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki hafa samið við færeyska landsliðsmarkvörðinn Randi S. Wardum. Frá þessu er greint á vefsíðu færeyska liðsins KÍ en þaðan kemur leikmaðurinn.

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður Vals, meiddist illa fyrir nokkrum vikum og spilar ekki í sumar. Er Randi ætlað að fylla skarð hennar en hún er fædd 1986.

Valur hefur haft augastað á Randi í nokkurn tíma og æfði hún til að mynda með liðinu um tíma á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×