Fótbolti

Guardiola líklegastur til að taka við Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Guardiola í spænska landsliðsbúningnum.
Guardiola í spænska landsliðsbúningnum.

Josep Guardiola, fyrrum fyrirliði Barcelona, er talinn líklegastur til að taka við sem þjálfari liðsins í sumar. Reiknað er með að Frank Rijkaard muni taka pokann sinn eftir tímabilið.

Spænskir fjölmiðlar segja að nefnd hjá Barcelona hafi fundað í gær og talið að Guardiola væri besti kosturinn til að taka við þjálfun liðsins. Joan Laporta, forseti Barcelona, og Txiki Begiristain, yfirmaður íþróttamála, voru meðal þeirra sem sátu fundinn.

Endanleg ákvörðun verður ekki opinberuð fyrr en eftir tímabilið. Samingur Rijkaard endar 2009 en hann hefur hingað til neitað að hann muni hætta eftir tímabilið. Barcelona hefur þó ekki unnið titil á tveimur síðustu tímabilum sem er ekki ásættanlegt.

Guardiola er fæddur í Barcelona og sló fyrst í gegn sem miðjumaður hjá liðinu þegar Johan Cruyff þjálfaði það. Hann varð fljótt í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum á Nývangi og var einn af lykilmönnunum í svokölluðu draumaliði Barcelona sem vann spænsku deildina fjögur ár í röð milli 1991-94.

Hann lék 47 landsleiki fyrir Spán. Árið 2001 yfirgaf hann Barcelona og hélt til Brescia á Ítalíu. Hann var dæmdur í leikbann vegna steranotkunar en neitaði allri sök og fór með málið í dómstóla. Honum var síðan dæmdur sigur í málinu í október á síðasta ári.

Eftir að hafa leikið í Katar og Mexíkó þá lagið Guardiola skóna á hilluna sem leikmaður í nóvember 2006. Hann tók við þjálfun B-liðs Barcelona í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×