Enski boltinn

Robinho ætlar sér til Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robinho á blaðamannafundinum í gær.
Robinho á blaðamannafundinum í gær. Nordic Photos / AFP
Robinho hefur ítrekað vilja sinn til að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea.

Hann hélt blaðamannafund í gær þar sem hann sagði að aðstæður hefðu ekkert breyst. Hann væri aðeins að hugsa um Chelsea og að hann vildi spila þar.

Bruce Buck, stjórnarformaður Chelsea, sagði í samtali við BBC að samningaviðræður við Real væru enn í gangi en enn væri langt í land. Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld.

„Við vitum að hann vill koma til Chelsea og gætu því næstu 36 klukkutímar orðið athyglisverðir," sagði hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×