Fótbolti

Ronaldinho og Deco áfram hjá Barcelona?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldinho í leik með Barcelona.
Ronaldinho í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Svo gæti farið að Ronaldinho og Deco verði um kyrrt hjá Barcelona ef marka má fréttaflutning spænska dagblaðsins As í dag.

Ronaldinho hefur lengi verið sagður á förum frá Barcelona og þá helst til AC Milan. Hins vegar virðast Milan ekki reiðubúið að greiða það sem Börsungar hafa farið fram á fyrir Ronaldinho. Deco er einnig sagður tilbúinn til að fara annað og þá helst til Inter á Ítalíu.

En miðað við nýjustu fréttir af stöðu Joan Laporta, forseta félagsins, gæti það farið svo að þeir verði áfram hjá félaginu. Svo gæti farið að Laporta verði þvingaður í burtu frá félaginu.

En jafnvel þótt að Laporta verði áfram munu báðir vera áfram ef félagið fær ekki viðunandi tilboð í þá.


Tengdar fréttir

Reynt að koma Laporta frá völdum

Tæplega tíu þúsund meðlimir Barcelona hafa skrifað undir tillögu þess efnis að allsherjarkosningar verði haldnar hjá félaginu í sumar um hvort boða eigi til nýrra forsetakosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×